Nokia 5235 Comes With Music - Upplýsingar um vottun (SAR)

background image

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til

leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur

mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni

ICNIRP og innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri

og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er notuð mælieiningin SAR

(Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru

2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á

SAR eru gerðar í hefðbundnum notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða

styrk á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur

verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk

sem þarf til að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d.

hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við

eyra 1,10 W/kg .
Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað. SAR-

gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu,

krafna og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur

á www.nokia.com.

Vöru- og öryggisupplýsingar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

165