Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera sprengihætta. Farðu eftir
leiðbeiningum sem gilda hverju sinni. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á
tækinu á eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða
skal takmarkanir í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing
eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar
sem kann að vera sprengihætta eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal
eru svæði þar sem ráð gæti verið að slökkva á vél bifreiðar, í farrýmum skipa, í
efnageymslum eða við efnaflutninga og þar sem efni eða agnir, s.s. ryk, sót eða
málduft gæti verið í lofti. Þú ættir að leita upplýsinga hjá framleiðendum farartækja
sem nota jarðgas (líkt og própan eða bútan) til að ákvarða hvort hægt sé að nota
þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.
Vöru- og öryggisupplýsingar
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
163