Nokia 5235 Comes With Music - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Rafhlaðan sem ætluð er til notkunar

með þessu tæki er BL-5J. Hugsanlega verður hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá

Nokia fyrir þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með

eftirfarandi hleðslutækjum: AC-8 . Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi

eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd með einu af eftirfarandi: E,

X, AR, U, A, C, K eða B.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að

hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal

skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og

aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til

notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í

langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan

og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið

nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að

hringja.
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en

rafhlaðan er fjarlægð.
Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið

þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við

hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar

hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita

á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu

og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa

tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem

mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á

rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta

Vöru- og öryggisupplýsingar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

157

background image

gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna

getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal

rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í

endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata eða tæta rafhlöður. Fari

rafhlaðan að leka skaltu forðast að hún komist í snertingu húð eða augu. Gerist það

skal hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna með vatni eða leita

læknisaðstoðar.
Skemmdir. Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki

eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana. Rafhlöður

geta sprungið ef þær skemmast.
Rétt notkun. Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Röng notkun

rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða sprenghættu, eða aðra hættu. Ef þú missir

tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að rafhlaðan hafi

skemmst, skaltu fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram

að nota hana. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma skal

rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.