
Sannvottun heilmyndar
1. Horfðu á heilmyndina. Þú ættir að sjá Nokia-
handabandstáknið frá einu sjónarhorni og 'Nokia Original
Accessories' táknið frá öðru.
2. Hallaðu heilmyndinni til vinstri, hægri, niður og upp. Þá
ættirðu að sjá 1, 2, 3 og 4 punkta til hliðar í sömu röð og þú
hallar myndinni.
Þetta er þó ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé
ósvikin. Ef þú getur ekki staðfest að svo sé eða hafir þú minnstu
ástæðu til að ætla að rafhlaðan með heilmyndinni sé ekki
ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með
hana til viðurkenndrar þjónustumiðstöðvar eða söluaðila
Nokia.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia-rafhlöður er að finna á
www.nokia.com/battery.