Nokia 5235 Comes With Music - Um stafræn réttindi

background image

Um stafræn réttindi

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf

og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta

hindrað afritun, breytingu eða flutning mynda, tónlistar og annars efnis.
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM)

til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi

gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki er hægt að opna

efni sem er varið með WMDRM 10 og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður

nær ekki að verja efni geta efniseigendur beðið um að hæfni slíks hugbúnaðar til

að opna nýtt efni sem er varið með stafrænni réttindatækni sé afturkölluð. Með

Vöru- og öryggisupplýsingar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

160

background image

afturköllun er einnig hægt að hindra endurnýjun á þannig vernduðu efni sem þegar

er í tækinu. Afturköllun slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er varið

með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er varið með

stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi sem tilgreinir hvernig

hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Ovi

Suite til að taka öryggisafrit af bæði leyfum og efninu.
Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir flytji leyfin sem þarf að endurstilla með OMA

DRM-vörðu efni, til þess að hægt sé að nota það eftir að minni tækisins hefur verið

forsniðið. Einnig gæti þurft að endurstilla leyfin ef skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt leyfum þess ef minni

tækisins er forsniðið. Einnig gætu leyfin og efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast.

Glatist leyfin eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.

Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang

að varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.