Meðferð tækisins
● Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa
því að þorna.
● Hvorki skal nota tækið á rykugum eða óhreinum stöðum né geyma það þar.
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
● Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
tækisins, skemmt rafhlöðuna og undið eða brætt plastefni.
● Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi
getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásir.
● Ekki skal reyna að opna tækið öðruvísi en tilgreint er í notendahandbókinni.
● Óleyfilegar breytingar geta skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði
laga um senditæki.
Vöru- og öryggisupplýsingar
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
159
● Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð
getur skemmt innri rafrásaspjöld og búnað.
● Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð tækisins.
● Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í
veg fyrir að þeir vinni rétt.
● Af og til skal slökkva skal á tækinu og fjarlægja rafhlöðuna til að það virki sem
best.
● Haltu tækinu frá seglum eða segulsviðum.
● Til að tryggja öryggi mikilvægra gagna skal vista þau á minnst tveimur stöðum,
svo sem í tækinu, á minniskorti eða tölvu, eða skrifa niður mikilvægar
upplýsingar.
Við lengri aðgerðir getur tækið hitnað. Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef grunur
leikur á að tæki vinni ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda
þjónustuaðila.