Nokia 5235 Comes With Music - Flýtiritun

background image

Flýtiritun

Með flýtiritun er hægt að slá inn hvaða orð sem er með því að velja takka aðeins

einu sinni. Í flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum

inn í. Flýtiritun er ekki í boði fyrir öll tungumál.
1. Flýtiritun er gerð virk í öllum ritlum tækisins með því að velja

>

Kveikja

á flýtiritun. Einnig er hægt að velja > Kveikja á flýtiritun.

2. Til að skrifa orð notarðu takkana 2-9. Veldu hvern takka aðeins einu sinni til að

slá inn einn staf. Veldu t.d. 6 fyrir N, 6 fyrir o, 5 fyrir k, 4 fyrir i og 2 fyrir a til að

skrifa „Nokia“, þegar enska orðabókin er valin.
Orðið sem stungið er upp á breytist eftir hvern staf sem er valinn.

3. Þegar þú klárar að skrifa orðið og það er rétt skaltu færa bendilinn til hægri til

að staðfesta það eða velja 0 til að setja inn bil.
Ef orðið er ekki rétt skaltu velja * endurtekið til að skoða orðin sem orðabókin

stingur upp á.
Ef ? birtist aftan við orðið er það ekki í orðabókinni. Orði er bætt inn í orðabókina

með því að velja Stafa, slá inn orðið á venjulegan hátt og velja síðan Í lagi. Þá

Textaritun

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

51

background image

er orðinu bætt inn í orðabókina. Þegar orðabókin er orðin full er elsta orðinu

sem var sett inn í hana skipt út fyrir nýjasta orðið.

4. Byrjaðu að skrifa næsta orð.