Nokia 5235 Comes With Music - Stillingar símkerfis

background image

Stillingar símkerfis

Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Símkerfi.
Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-símkerfanna. GSM-símkerfi eru

sýnd með . UMTS-símkerfi eru sýnd með

.

Veldu úr eftirfarandi:
Símkerfi — Veldu hvaða kerfi þú vilt nota. Ef þú velur Tvöfalt kerfi skiptir tækið

sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar og

reikisamninga á milli þjónustuveitna. Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar

um reikigjöld. Þessi valkostur sést aðeins ef þjónustuveitan styður hann.
Reikisamningur er samningur milli tveggja eða fleiri þjónustuveitna um að leyfa

notendum einnar veitunnar að nota þjónustu hinna.

Val á símafyrirtæki — Veldu Sjálfvirkt til að stilla tækið þannig að það leiti að

og velji eitt af þeim símkerfum sem eru í boði, eða Handvirkt til að velja símkerfi

af lista. Ef tengingin rofnar við símkerfið, sem valið var handvirkt, gefur tækið

frá sér hljóðmerki og biður um að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið

verður að vera með reikisamning við heimakerfið þitt.

Um endurvarpa — Láttu tækið gefa til kynna þegar það er notað í farsímakerfi

sem byggir á örbylgjutækni (MCN) og til að virkja móttöku upplýsinga frá

endurvarpa.