
Stillingar símkerfis
Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Símkerfi.
Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-símkerfanna. GSM-símkerfi eru
sýnd með . UMTS-símkerfi eru sýnd með
.
Veldu úr eftirfarandi:
● Símkerfi — Veldu hvaða kerfi þú vilt nota. Ef þú velur Tvöfalt kerfi skiptir tækið
sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar og
reikisamninga á milli þjónustuveitna. Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar
um reikigjöld. Þessi valkostur sést aðeins ef þjónustuveitan styður hann.
Reikisamningur er samningur milli tveggja eða fleiri þjónustuveitna um að leyfa
notendum einnar veitunnar að nota þjónustu hinna.
● Val á símafyrirtæki — Veldu Sjálfvirkt til að stilla tækið þannig að það leiti að
og velji eitt af þeim símkerfum sem eru í boði, eða Handvirkt til að velja símkerfi
af lista. Ef tengingin rofnar við símkerfið, sem valið var handvirkt, gefur tækið
frá sér hljóðmerki og biður um að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið
verður að vera með reikisamning við heimakerfið þitt.
● Um endurvarpa — Láttu tækið gefa til kynna þegar það er notað í farsímakerfi
sem byggir á örbylgjutækni (MCN) og til að virkja móttöku upplýsinga frá
endurvarpa.