Fast númeraval
Veldu Valmynd > Tengiliðir og Valkostir > SIM-númer > Tengil. í föstu
nr.vali.
Með föstu númeravali er hægt að takmarka símtöl úr tækinu þannig að aðeins sé
hægt að hringja í ákveðin símanúmer. Það styðja ekki öll SIM-kort fast númeraval.
Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitu.
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo sem útilokun, lokaður
notendahópur og fast númeraval) kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið. Útilokun og flutningur símtala getur ekki
verið virkt samtímis.
Nauðsynlegt er að hafa PIN2-númer til að kveikja og slökkva á föstu númeravali og
breyta tengiliðum í föstu númeravali. Þú færð PIN2-númerið hjá þjónustuveitunni.
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Virkja fast númeraval — Kveikja á föstu númeravali.
● Slökkva á föstu nr.vali — Slökkva á föstu númeravali.
Tengiliðir
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
56
● Nýr SIM-tengiliður — Sláðu inn símanúmer og nafn tengiliðar sem leyfilegt er
að hringja í.
● Bæta við úr Tengiliðum — Afrita tengilið af tengiliðalistanum í listann yfir fast
númeraval.
Til að geta sent textaskilaboð til SIM-tengiliða í föstu númeravali þarftu einnig að
bæta númeri skilaboðamiðstöðvarinnar við listann.
7. Skilaboð
Aðalskjár Skilaboða
Veldu Valmynd > Skilaboð (sérþjónusta).
Til að búa til ný skilaboð velurðu Ný skilaboð.
Ábending: Til að komast hjá því að endurrita skilaboð sem oft eru send skaltu
nota textana í möppunni Sniðmát í Möppurnar mínar. Einnig geturðu búið til
og vistað þín eigin sniðmát.
Skilaboð inniheldur eftirfarandi möppur:
●
Innhólf — Móttekin skilaboð, fyrir utan tölvupóstskeyti og skilaboð frá
endurvarpa eru geymd hér.
●
Mínar möppur — Raðaðu skilaboðum í möppur.
●
Pósthólf — Hægt er að tengjast við ytra pósthólf til að sækja nýjan tölvupóst
og skoða eldri tölvupóst án tengingar.
●
Drög — Drög að skilaboðum sem hafa ekki verið send.
●
Sendir hlutir — Síðustu skilaboðin sem voru send, fyrir utan þau sem voru
send um Bluetooth, eru vistuð hér. Hægt er að fækka eða fjölga skilaboðum sem
eru vistuð í þessari möppu.
●
Úthólf — Skilaboð sem bíða þess að verða send eru vistuð tímabundið í
úthólfinu, t.d. þegar tækið er utan þjónustusvæðis.
●
Skilatilkynningar — Hægt er að biðja símkerfið að senda skilatilkynningar
fyrir send texta- og margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta).