Hringitónar, myndir og texti fyrir tengiliði
Hægt er að tilgreina hringitón fyrir tengilið eða hóp, og mynd og texta fyrir tengilið.
Þegar tengiliðurinn hringir í þig spilar tækið tiltekna hringitóninn og birtir textann
eða myndina (ef tækið ber kennsl á símanúmerið sem er sent með hringingunni).
Til að setja inn hringitón fyrir tengilið eða tengiliðahóp velurðu tengiliðinn eða
hópinn og Valkostir > Breyta > Hringitónn og hringitón.
Til að bæta fleiri reitum við upplýsingaskjá tengiliðs velurðu tengiliðinn og
Valkostir > Breyta > Valkostir > Bæta við upplýsingum.
Til að setja inn texta fyrir tengilið velurðu tengiliðinn og Valkostir > Breyta >
Valkostir > Bæta við upplýsingum > Texti hringitóns. Smelltu á textareitinn
til að slá inn textann og veldu .
Til að setja inn mynd fyrir tengilið sem vistaður er í minni tækisins velurðu
tengiliðinn, Valkostir > Breyta > Bæta við mynd og mynd úr Gallerí.
Til að hætta að nota hringitóninn skaltu velja Sjálfgefinn tónn af
hringitónalistanum.
Til að skoða, breyta eða eyða myndinni velurðu tengiliðinn, Valkostir > Breyta >
Mynd > Valkostir og valkost.