Tónlistarmappa
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
78
Spólað er hratt fram og til baka með því að smella á eða og halda inni.
Til að fara yfir í næsta atriði skaltu smella á . Til að
spila aftur upphaf atriðisins skaltu smella á . Til að
hoppa yfir í fyrra atriðið skaltu smella aftur á innan
2 sekúndna eftir að spilun lags eða netvarpsþáttar hefst.
Til að kveikja eða slökkva á handahófskenndri spilun
( ) skaltu velja Valkostir > Spilun af handahófi.
Til að endurtaka lag í spilun ( ), öll lögin ( ), eða
slökkva á endurtekningu skaltu velja Valkostir >
Endurtaka.
Við spilun á netvarpsatriðum er sjálfkrafa slökkt á
stokkun og endurtekningu.
Hljóðstyrknum er breytt með því að ýta á
hljóðstyrkstakkann.
Til að breyta hljómi lagsins skaltu velja Valkostir >
Tónjafnari.
Til að breyta hljómburðinum og steríóstillingunni eða
auka bassann skaltu velja Valkostir > Stillingar.
Til að fara aftur á heimaskjáinn og láta spilarann vera í gangi í bakgrunninum skaltu
ýta á hætta-takkann.
Til að loka spilaranum skaltu velja Valkostir > Hætta.