
Niðurhöl
Eftir að hafa gerst áskrifandi að netvarpi á safnsíðu, með leit eða með því að slá inn
veffang geturðu sýslað með, hlaðið niður og spilað þætti í Podcasts.
Til að sjá hvaða netvarpsþáttum þú hefur gerst áskrifandi að skaltu velja
Podcasting > Podcasts.
Til að sjá titla einstakra þátta (þáttur er ákveðin miðlunarskrá í netvarpi) velurðu
netvarpstitilinn.
Tónlistarmappa
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
83

Til að hefja niðurhalið velurðu titil þáttarins. Til að hlaða niður (eða halda áfram
niðurhali á) völdum eða merktum þáttum velurðu Valkostir > Hlaða niður. Hægt
er að hlaða niður mörgum þáttum á sama tíma.
Til að spila hluta af netvarpi meðan á niðurhali stendur eða þegar því hefur verið
hlaðið niður velurðu það og Valkostir > Spila sýnishorn.
Netvörð sem hefur verið hlaðið niður að fullu vistast í Netvörp möppunni. Þau sjást
hins vegar ekki fyrr en safnið er uppfært.