
Stillingar hljóðstyrks og hátalara
Þegar símtal er í gangi eða verið er að hlusta á eitthvað er hljóðstyrkurinn stilltur
með því að ýta á hljóðstyrkstakkann.
Innbyggði hátalarinn gerir þér kleift að tala í tækið og hlusta á það sem
viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð án þess að þurfa að halda tækinu við
eyrað.
Til að nota hátalarann þegar símtal fer fram velurðu Kveikja á hátalara.
Veldu Hljóð í símtól til að slökkva á hátalaranum.