
Stillingar fyrir aukabúnað
Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Aukabúnaður.
Sum tengi fyrir aukabúnað sýna hvaða tegund búnaðar er tengd við tækið.
Veldu aukabúnað og svo úr eftirfarandi:
● Sjálfvalið snið — Veldu sniðið sem nota skal í hvert skipti sem tiltekinn
samhæfur aukahlutur er tengdur við tækið.
● Sjálfvirkt svar — Stilltu tækið svo það svari innhringingu sjálfkrafa eftir fimm
sekúndur. Ef hringitónninn er stilltur á Pípa einu sinni eða Án hljóðs er slökkt
á sjálfvirkri svörun.
● Ljós — Stilltu ljósin svo þau lýsi áfram að biðtíma loknum.
Það fer eftir aukabúnaðinum hvaða stillingar er hægt að velja.