Umsjón með vottorðum
Stafræn vottorð vernda efni við flutning á trúnaðarupplýsingum. Nota ætti slík
vottorð ef tengjast á netbanka eða öðru vefsvæði eða fjartengdum miðlara vegna
aðgerða sem fela í sér sendingu trúnaðarupplýsinga.
Einnig ætti að nota slík vottorð til að minnka hættuna á vírusum eða öðrum
skaðlegum hugbúnaði og tryggja áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af
netinu og settur upp.
Veldu Valmynd > Stillingar og Sími > Símastjórnun > Öryggi >
Vottorðastjórnun og veldu þá tegund vottorðs sem þú vilt nota.
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð til að staðfesta uppruna
hugbúnaðar.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir
fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið
öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að
vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð
eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn
ekki tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt
dag- og tímasetning sé í tækinu.