Nokia 5235 Comes With Music - Um GPS

background image

Um GPS

Hnitin í GPS-tækinu eru gefin upp samkvæmt alþjóðlega WGS-84 hnitakerfinu. Það

er mismunandi eftir svæðum hvort hnit séu í boði.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla

ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða

fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn

og kann að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um

borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði

gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar,

náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði

GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki náist ekki inni í byggingum eða

neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og

málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að

treysta eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir

staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og sléttunarvillur eru mögulegar.

Nákvæmnin veltur einnig á móttöku og gæðum GPS-merkja.
Hægt er að kveikja eða slökkva á mismunandi staðsetningaraðferðum í

staðsetningarstillingum.