Nokia 5235 Comes With Music - Leiðarmerki

background image

Leiðarmerki

Veldu Valmynd > Forrit > Staðsetning og Leiðarmerki.

Staðsetning (GPS)

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

107

background image

Með Leiðarmerki er hægt að vista upplýsingar um staðsetningu tiltekinna staða í

tækinu. Hægt er að flokka vistaðar staðsetningar í nokkra flokka, svo sem viðskipti,

og bæta þar við öðrum upplýsingum, t.d. heimilisföngum. Hægt er að nota vistuð

leiðarmerki í samhæfum forritum, svo sem GPS-gögnum.
GPS-hnit eru gefin upp samkvæmt alþjóðlega WGS-84 hnitakerfinu.
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
Nýtt leiðarmerki — Nýtt leiðarmerki búið til. Til að óska eftir upplýsingum um

núverandi staðsetningu skaltu velja Núv. staðsetning. Til að færa upplýsingar

um staðsetningu inn handvirkt skaltu velja Slá inn.

Breyta — Til að breyta eða bæta upplýsingum við vistað leiðarmerki (t.d.

götuheiti).

Bæta við flokk — Til að bæta leiðarmerki við flokk í Leiðarmerkjum. Veldu þá

flokka sem þú vilt bæta leiðarmerkinu í.

Senda — Til að senda eitt eða fleiri leiðarmerki í samhæfa tölvu. Móttekin

leiðarmerki eru sett í möppuna Innhólf í Skilaboðum.

Hægt er að raða leiðarmerkjunum í fyrir fram ákveðna flokkna og búa til nýja flokka.

Hægt er að breyta og búa til nýja flokka fyrir leiðarmerki með því að opna flipann

yfir flokka og velja Valkostir > Breyta flokkum.