Leiðarmerki
Veldu Valmynd > Forrit > Staðsetning og Leiðarmerki.
Staðsetning (GPS)
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
107
Með Leiðarmerki er hægt að vista upplýsingar um staðsetningu tiltekinna staða í
tækinu. Hægt er að flokka vistaðar staðsetningar í nokkra flokka, svo sem viðskipti,
og bæta þar við öðrum upplýsingum, t.d. heimilisföngum. Hægt er að nota vistuð
leiðarmerki í samhæfum forritum, svo sem GPS-gögnum.
GPS-hnit eru gefin upp samkvæmt alþjóðlega WGS-84 hnitakerfinu.
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Nýtt leiðarmerki — Nýtt leiðarmerki búið til. Til að óska eftir upplýsingum um
núverandi staðsetningu skaltu velja Núv. staðsetning. Til að færa upplýsingar
um staðsetningu inn handvirkt skaltu velja Slá inn.
● Breyta — Til að breyta eða bæta upplýsingum við vistað leiðarmerki (t.d.
götuheiti).
● Bæta við flokk — Til að bæta leiðarmerki við flokk í Leiðarmerkjum. Veldu þá
flokka sem þú vilt bæta leiðarmerkinu í.
● Senda — Til að senda eitt eða fleiri leiðarmerki í samhæfa tölvu. Móttekin
leiðarmerki eru sett í möppuna Innhólf í Skilaboðum.
Hægt er að raða leiðarmerkjunum í fyrir fram ákveðna flokkna og búa til nýja flokka.
Hægt er að breyta og búa til nýja flokka fyrir leiðarmerki með því að opna flipann
yfir flokka og velja Valkostir > Breyta flokkum.