Nokia 5235 Comes With Music - Góð ráð við að koma á GPS-tengingu

background image

Góð ráð við að koma á GPS-tengingu

Athugaðu stöðu gervihnattamerkja

Til að kanna hversu marga gervihnetti tækið hefur fundið, og hvort það er að taka

við upplýsingum frá gervihnöttunum, velurðu Valmynd > Forrit > Staðsetning

og GPS-gögn > Valkostir > Staða gervitungla.

Staðsetning (GPS)

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

106

background image

Ef tækið hefur fundið gervitungl birtist stika fyrir hvert

þeirra á upplýsingaskjá gervitungla. Því lengri sem

stikan er, þeim mun meiri er styrkurinn. Stikan skiptir

litum þegar tækið hefur fengið nægar upplýsingar úr

merkinu frá gervitunglinu til að geta reiknað út

staðsetningu þína.
Til að sjá stöðu gervihnattanna velurðu Breyt. útliti.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum gervitunglum til að geta reiknað

út staðsetningu þína. Þegar frumútreikningur hefur farið fram kann það að vera

mögulegt að reikna út staðsetningu þína með þremur gervitunglum. Hins vegar er

útreikningurinn nákvæmari þegar fleiri gervitungl finnast.
Ef ekkert merki frá gervitungli finnst skal athuga eftirfarandi:
● Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.
● Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
● Gakktu úr skugga um að höndin sé ekki yfir GPS-loftneti tækisins.
● Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á merkisstyrkinn.
● Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst að gervihnattamerki

berist í gegnum þær.