Nokia 5235 Comes With Music - Ritun og sending skilaboða

background image

Ritun og sending skilaboða

Veldu Valmynd > Skilaboð.

Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta

innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan

hátt.
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð eða skrifað tölvupóst verða réttar

tengistillingar að vera fyrir hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt

er inn fer yfir þessi mörk gæti tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda

hana með MMS.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt

margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.
Athugaðu stærðartakmörk tölvupóstskeyta hjá þjónustuveitunni. Ef þú reynir að

senda tölvupóst sem er yfir mörkum tölvupóstmiðlarans eru skilaboðin áfram í

möppunni Úthólf og tækið reynir reglulega að senda þau. Gagnatenging er

nauðsynleg til að hægt sé að senda tölvupóst og þjónustuveitan kann að innheimta

gjald fyrir endurteknar tilraunir til að senda tölvupóst. Hægt er að eyða slíkum

skilaboðum í möppunni Úthólf eða færa þau yfir í möppuna Drög.
Það þarf netþjónustu til að geta sent skilaboð.
Senda texta- eða margmiðlunarskilaboð — Veldu Ný skilaboð.
Senda hljóð- eða póstskilaboð — VelduValkostir > Búa til skilaboð og

viðeigandi valmöguleika.
Velja viðtakendur eða hópa af tengiliðalistanum — Veldu á tækjastikunni.
Sláðu inn númer eða netfang handvirkt — Veldu Til efnisreitinn.
Sláðu inn titil tölvupósts- eða margmiðlunarskilaboða — Staðfestu það í Efni

reitnum. Ef reiturinn Efni er ekki sýnilegur velurðu Valkostir > Skilaboðahausar

til að breyta reitunum sem eru sýnilegir.

Skilaboð

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

58

background image

Skrifaðu skilaboðin — Veldu skilaboðareitinn.
Bættu hlut við skilaboð eða póst — Veldu og viðeigandi tegund af efni. Tegund

skilaboða kann að breytast í margmiðlunarskilaboð eftir því hvert efnið er.
Senda skilaboðin eða póstinn — Veldu

, eða ýttu á hringitakkann.

Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri

skilaboð eru send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald

í samræmi við það. Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra

tungumála taka meira pláss og takmarka þann stafafjölda sem hægt er að senda í

einum skilaboðum.