Spjallaðu við vini þína
Spjallað við vin — Veldu vininn.
Spjallskilaboð send — Sláðu inn textann í skilaboðareitinn og veldu
sendingartáknið.
Á spjallskjánum velurðu Valkostir og úr eftirfarandi:
● Senda — Senda skilaboðin.
● Senda skrá — Sendu mynd, myndskeið, hljóðskrá eða aðra skrá til spjallfélaga
þíns.
● Senda staðsetn. mína — Til að senda staðsetningu þína til spjallfélaga (ef bæði
tækin styðja slíkt).
● Setja inn broskarl — Til að setja inn broskarl.
● Snið — Til að sjá upplýsingar um vin.
● Svæðið mitt — Til að velja viðverustöðu þína eða myndina, sérsníða skilaboð
eða breyta persónuupplýsingunum.
● Breyta texta — Til að afrita eða líma texta.
● Ljúka spjalli — Til að ljúka spjalli.
● Hætta — Til að ljúka öllu spjalli og loka forritinu.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.
Skilaboð
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
71
Til að geta móttekið staðsetningarupplýsingar frá vini þínum verður þú að vera með
Kortaforritið. Nauðsynlegt er að vera með bæði Korta- og Staðsetningarforritið til
að geta sent og móttekið upplýsingar um staðsetningu.
Til að taka við skrám þarf að samþykkja þær. Til að hætta við sendingu eða móttöku
meðan skráarflutningurinn er í gangi velurðu Hætta við.
Staðsetning vinar skoðuð — Veldu Sýna á korti.
Farið til baka á aðalskjá Ovi-samskipta, án þess að slíta spjalli — Veldu Til
baka.
Að bæta við, hringja í eða afrita símanúmer úr spjalli — Farðu að símanúmeri
í spjalli og veldu Valkostir og viðeigandi kost.