
Ovi-samstilling
Þú verður að vera með Nokia-áskrift og ræsa Ovi-samskiptaþjónustuna í tækinu til
að samstilla það við Ovi.
Tækið samstillt við Ovi
1. Þegar tækið er samstillt við Ovi í fyrsta skipti skaltu nota Samstillingarhjálpina
til að velja hvaða efni á að samstilla og tímann sem líða skal milli samstillinga.
2. Veldu Samstilla. Ef tækið er í ótengdu sniði skaltu koma á internettengingu
þegar beðið er um það.
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Byrja — Til að samstilla tækið við Ovi.
● Hætta við — Til að hætta við samstillingu.
● Samstillingar — Til að breyta stillingum fyrir samstillingu.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.