Nokia 5235 Comes With Music -  Skrár úr Galleríinu sendar  

background image

Skrár úr Galleríinu sendar

Hægt er að senda skrár úr Gallerí til samnýtingarþjónustu á netinu.
1. Veldu Valmynd > Gallerí og skrárnar sem þú vilt senda.
2. Veldu Valkostir > Senda > Birta og veldu viðeigandi áskrift.
3. Breyttu sendingunni ef þörf krefur.
4. Veldu Valkostir > Senda.

13. Nokia Myndefnisþjónusta

Með Kvikmyndabankanum (sérþjónusta) er hægt að hlaða niður og straumspila

myndskeið frá samhæfum kvikmyndaveitum á netinu með því að nota

pakkagagnatengingu. Einnig er hægt að flytja myndskeið úr samhæfri tölvu í tækið

og skoða þau í Video centre.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar að

nota aðgangsstaði fyrir pakkagögn til að hlaða niður hreyfimyndum. Upplýsingar

um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Tækinu getur fylgt fyrirfram valin þjónusta.
Þjónustuveitur bjóða ýmist upp á ókeypis efni eða taka gjald fyrir. Kannaðu verðið

hjá þjónustunni eða þjónustuveitunni.

Hreyfimyndir skoðaðar og þeim hlaðið niður

Tenging við myndefnisþjónustu

1. Veldu Valmynd > Forrit > Kvikm.banki.
2. Tengst er við þjónustu og myndefnisþjónusta sett upp með því að velja Bæta

við nýrri þjónustu og þá myndefnisþjónustu sem óskað er eftir af

þjónustulistanum.

Myndskeið skoðað

Til að skoða efnið sem þjónustan býður upp á skaltu velja Myndstraumar.