Nokia Myndefnisþjónusta
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
96
Sumar myndefnisþjónustur skipta efninu í flokka. Til að skoða myndskeið velurðu
flokk. Hægt er að leita að myndskeiðum í þjónustunni með því að velja Leita að
myndskeiðum. Ekki er víst að boðið sé upp á leit hjá öllum þjónustum.
Til að sjá upplýsingar um myndskeiðið sem valið hefur verið skaltu velja
Valkostir > Um hreyfimynd.
Hægt er að straumspila sumar hreyfimyndir en hlaða þarf öðrum niður í tækið til
að hægt sé að spila þær. Veldu Valkostir > Sækja til að hlaða niður hreyfimynd.
Ef farið er út úr forritinu heldur myndin áfram að hlaðast niður í bakgrunninum.
Myndskeið sem hlaðið er niður eru vistuð í Myndskeiðin mín. Til að straumspila
myndskeið eða skoða mynd sem hefur verið hlaðið niður velurðu Valkostir >
Spila. Hægt er að stjórna spilaranum með stýritökkunum og smella á skjáinn meðan
myndskeið er spilað. Notaðu hljóðstyrkstakkann til að stilla hljóðstyrkinn.
Viðvörun: Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal
á tónlist á hóflegum hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er
á hátölurunum.
Niðurhal skipulagt
Ef forritið er stillt þannig að það sæki myndskeið sjálfkrafa getur slíkt falið í sér
stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar um gagnaflutningsgjöld. Til að tímsetja sjálfvirkt niðurhal á
myndskeiðum skaltu velja efnisflokk og Valkostir > Áætluð niðurhöl.
Kvikmyndabankinn hleður daglega niður nýjum myndskeiðum sjálfvirkt á þeim
tíma sem þú tilgreinir.
Til að hætta við tímasett niðurhal á efnisflokki skaltu velja Handvirkt niðurhal.