
Tækjastika vafrans
Tækjastikan auðveldar þér að velja algengar aðgerðir í vafranum.
Hægt er að velja úr eftirfarandi atriðum á tækjastikunni:
●
Víkka tækjastiku — Til að framlengja tækjastikuna og fá upp fleiri aðgerðir.
●
Opna veffang — Til að slá inn nýtt veffang.
●
Sýna aðdrátt — Til að auka eða minnka aðdrátt á vefsíðunni.
Til að geta notað framlengdu tækjastikuna velurðu Víkka tækjastiku og úr
eftirfarandi:
●
Straumar — Til að skoða núgildandi áskrift að straumum.
●
Allur skjár — Til að skipta yfir á allan skjáinn.
●
Áskr. staum. — Til að skoða lista yfir tiltæka vefstrauma á opnu vefsíðunni
og gerast áskrifandi að straumi.
●
Stillingar — Til að breyta stillingunum.
●
Vista bók.m. — Til að vista vefsíðuna sem verið er að skoða sem bókarmerki.
●
Hlaða aftur — Til að endurnýja vefsíðuna.
●
Yfirlit — Til að birta yfirlit vefsíðunnar sem er opin.
●
Heimasíða — Til að fara á heimasíðuna (hafi hún verið valin sem stilling).
●
Bókamerki — Til að opna bókamerkjaskjáinn.
●
Finna orð — Til að leita á vefsíðunni sem er opin.
Netvafri
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
101