Leit
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
133
Niðurstöður sem síðast voru opnaðar birtast efst á listanum ef þær samræmast
leitarorðunum.
Til að leita að vefsíðum á internetinu velurðu Leita á internetinu, leitarþjónustu,
og slærð leitarorð inn í leitarreitinn. Leitarþjónustan sem þú valdir verður þá
framvegis sjálfgefin þjónustuveita við leit á netinu.
Ef sjálfgefin leitarþjónusta er þegar til staðar skaltu velja hana til að hefja leit eða
velja Fleiri leitarþjónustur ef þú vilt nota aðra leitarþjónustu.
Til að breyta lands- eða svæðisstillingum og finna fleiri leitarþjónustur velurðu
Valkostir > Stillingar > Land eða svæði.
19. Um Ovi-verslunina
Í Ovi-versluninni geturðu hlaðið niður leikjum, forritum, myndskeiðum, myndum
og hringitónum í tækið þitt. Sumir hlutir kosta ekki neitt; aðra þarftu að kaupa og
greiða fyrir með kreditkorti eða láta skuldfæra á símareikninginn. Það fer eftir landi
og þjónustuveitu hvaða greiðslumáta er boðið upp á. Ovi-verslunin býður upp á efni
sem er samhæft við tækið þitt og hæfir bæði smekk þínum og staðsetningu.
20. Önnur forrit
Klukka
Stilling tíma og dagsetningar
Veldu Valmynd > Forrit > Klukka.
Veldu Valkostir > Stillingar og svo úr eftirfarandi:
● Tími — Stilla tímann.
● Dagsetning — Stilla dagsetningu.
● Sjálfvirk tímauppfærsla — Láta símkerfið uppfæra sjálfvirkt tímann,
dagsetninguna og tímabelti klukkunnar (sérþjónusta).