Um staðsetningaraðferðir
Maps sýnir hvar þú ert staddur á kortinu með GPS, A-GPS eða staðsetningu byggðri
á auðkenni endurvarpa.
Kort
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
112
GPS (Global Positioning System) er leiðsögukerfi sem byggir á móttöku
staðsetningarupplýsinga frá gervitunglum til að reikna út staðsetningu þína. A-GPS
(Assisted GPS) er sérþjónusta sem sendir þér GPS-gögn, sem eykur hraða og
nákvæmni staðsetningarinnar.
Með staðsetningu byggðri á auðkennum endurvarpa er staðan ákvörðuð gegnum
loftnetsturninn sem tækið er tengt við eins og er.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta skipti er beðið um að þú tilgreinir
internetaðgangsstaðinn til að hlaða niður kortaupplýsingum eða nota A-GPS.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla
ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða
fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn
og kann að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um
borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði
gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði
GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki náist ekki inni í byggingum eða
neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og
málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að
treysta eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir
staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og sléttunarvillur eru mögulegar.
Nákvæmnin veltur einnig á móttöku og gæðum GPS-merkja.