Kort
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
109
Til athugunar: Við niðurhal á efni eins og kortum, gervihnattamyndum,
hljóðskrám eða umferðarupplýsingum getur verið um mikinn gagnaflutning að
ræða (sérþjónusta).
Ekki er víst að umbeðin þjónusta sé í boði í öllum löndum, eða á því tungumáli sem
valið er. Þjónustan kann að velta á netkerfinu. Símafyrirtækið gefur nánari
upplýsingar.
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og ófullnægjandi að einhverju leyti. Aldrei
skal treysta eingöngu á kort sem hlaðið hefur verið niður til notkunar með þessu
tæki.
Efni á borð við gervihnattarmyndir, leiðbeiningar, veður- og umferðarupplýsingar
og tengd þjónusta er útbúin af þriðju aðilum sem tengjast ekki Nokia. Efnið kann
að vera ónákvæmt og ófullnægjandi að einhverju leyti og veltur á framboði. Aldrei
skal treysta eingöngu á fyrrgreint efni og tengda þjónustu.