Nokia 5235 Comes With Music - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Tækið býr sjálfkrafa til raddmerki fyrir tengiliðina. Til að hlusta á tilbúna raddmerkið

skaltu velja tengilið og Valkostir > Um raddmerki. Flettu að tengilið og veldu

Valkostir > Spila raddmerki.

Hringt með raddmerki

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi

eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar

aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í notkun. Haltu tækinu nálægt

þér þegar þú berð fram raddmerkið.
1. Til að hefja raddstýrða hringingu skaltu halda hringitakkanum inni á

heimaskjánum. Ef samhæft höfuðtól með höfuðtólstakka er notað skaltu halda

takkanum inni til að hefja raddstýrða hringingu.

2. Stutt hljóðmerki heyrist og textinn Tala nú birtist. Berðu nafnið sem er vistað

hjá tengiliðnum skýrt fram.

3. Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því tungumáli sem er valið og

birtir nafnið og símanúmerið. Til að hætta við raddstýrða hringingu velurðu

Hætta.

Ef nokkur númer eru vistuð hjá nafni er einnig hægt að bera fram nafnið og gerð

númersins, svo sem farsími eða heimasími.

Hringt úr tækinu

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

41