Nokia 5235 Comes With Music - Uppfærsla á hugbúnaði um netið

background image

Uppfærsla á hugbúnaði um netið

Veldu Valmynd > Forrit > Hugb.uppf..
Með Uppfærslu forrita (sérþjónusta) geturðu kannað hvort einhverjar uppfærslur

fyrir hugbúnað tækisins eru tiltækar og hlaðið þeim niður í tækið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar gagnasendingar

(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður

en uppfærslan er ræst.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á hugbúnaðaruppfærslu

stendur, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota það að

uppfærslunni lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka skal öryggisafrit af

gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.
Þegar þú hefur uppfært hugbúnað eða forrit tækisins með Software update er ekki

víst að leiðbeiningarnar um uppfærðu forritin í notendahandbókinni eða í

hjálpartextanum eigi lengur við.
Til að hlaða niður tiltækum uppfærslum velurðu . Veldu uppfærslur á listanum til

að afmerkja tilteknar uppfærslur sem þú vilt ekki hlaða niður.
Til að sjá upplýsingar um uppfærslu velurðu hana og síðan .
Til að sjá fyrri uppfærslur velurðu .
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
Uppfæra í gegnum tölvu — Uppfærðu tækið með tölvunni. Þessi valkostur

kemur í stað valkostarins Ræsa uppfærslu þegar aðeins er hægt að nálgast

uppfærslur með Nokia Software Updater forritinu.

Skoða fyrri uppfærslur — Skoða stöðu eldri uppfærslna.

Stillingar — Breyta stillingunum, svo sem sjálfgefnum aðgangsstað sem

notaður er til að hlaða niður uppfærslum.

Afsal ábyrgðar — Skoðaðu Nokia leyfissamninginn.

Hjálp

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

12