Nokia 5235 Comes With Music - Uppsetning forrita

background image

Uppsetning forrita

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður

þegar vafrað er eða fá þær sendar sem margmiðlunarskilaboð, sem

tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.
Hægt er að nota Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp forrit í

tækinu.
Veldu Valmynd > Stillingar og Forritastjórnun.
Uppsetningarskrárnar eru staðsettar í möppunni Uppsetn.skrár og uppsettu forritin

í möppunni Uppsett forrit.
Tákn sýna eftirfarandi:

SIS- eða SISX-forrit

Java-forrit

Græjur

Forrit sett upp á minniskortinu

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá

traustum aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð

með Java Verified™.
Áður en forritið er sett skaltu athuga eftirfarandi:
● Skoðaðu gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða framleiðanda forritsins.

Veldu Valkostir > Skoða upplýsingar.

Önnur forrit

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

138

background image

● Skoðaðu upplýsingar um öryggisvottorð forritsins. Veldu Upplýsingar: >

Vottorð: > Skoða upplýsingar. Hægt er að stjórna notkun stafrænna vottorða

í Vottorðastjórnun.

Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða endurbætur á forriti sem þegar

er uppsett geturðu aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort

upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða öryggisafrit af öllum

hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið

skaltu fyrst fjarlægja forritið og síðan setja það upp aftur úr upphaflegu

uppsetningarskránni eða öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar getur

tækið beðið þig um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur

fyrir forritið biður tækið þig um að velja aðgangsstað.

Setja upp forrit

1. Leitaðu að uppsetningarskránni í möppunni fyrir uppsetningarskrár í

Forritastjórnun eða leitaðu að þeim í Skráarstjóra eða innhólfi þínu í

Skilaboðum.

2. Í Forritastjóra velurðu forritið sem þú vilt setja upp og Valkostir > Setja upp.

Í öðrum forritum velurðu uppsetningarskrána til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um stöðu

uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða vottorðs

birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið ef þú ert

viss um uppruna þess og innihald.

Opna uppsett forrit — Veltu forritið í valmyndinni. Ef forritið er ekki með sjálfgefna

möppu skilgreinda er það sett upp í möppunni Uppsett forrit á aðalvalmyndinni.
Sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið uppsettir eða fjarlægðir — Veldu

Valkostir > Skoða notkunarskrá.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en

eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið

því að það virki ekki.

Önnur forrit

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

139

background image

Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa

verið sett upp á samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið

því að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia Ovi

Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu.

Að því loknu skaltu nota Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr minni

tækisins. Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða

skilaboðunum úr innhólfinu.